„Við vorum ekki lakari aðilinn það er nokkuð ljóst, þeir refsa okkur grimmilega með tveimur mörkum sem er frekar léleg varnarvinna hjá mínum mönnum," sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Fótbolta.net eftir 1-3 tap gegn Breiðablik í Pepsi deild karla.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Breiðablik
„Mér fannst við vera mun betri aðilinn í þessum leik og við hefðum alveg getað unnið 3-1 ef við hefðum nýtt þessi færi sem við fengum, við fengum alveg helling af þeim."
„Ég held við séum með 15 horn í þessum leik og ég veit ekki hvað margar fyrirgjafir og sköpum okkur fullt í þessum leik. Það eiga að vera það mikil gæði í þessu liði að við eigum að nýta þessi móment," sagði Rúnar Páll.
Athugasemdir