Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. maí 2016 21:26
Magnús Már Einarsson
Tokic kominn með 18 mörk í 14 leikjum með Víkingi Ó.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatíski framherjinn Hrvoje Tokic hefur farið á kostum í Pepsi-deildinni í sumar.

Hann tryggði Víkingi Ólafsvík stig gegn Íslandsmeisturm FH með jöfnunarmarki á 86. mínútu.

Tokic kom til Víkings um mitt sumar í fyrra og markhlutfall hans með liðinu er stórkostlegt.

Tokic er markahæsti maðurinn í Pepsi-deildinni í dag með sex mörk í fyrstu sex umferðunum.

Í fyrra skoraði hann tólf mörk í átta leikjum í 1. deildinni með Ólsurum og þvi er hann samtals með 18 mörk í 14 leikjum með liðinu. Hreint út sagt mögnuð tölfræði!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner