Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 30. maí 2016 20:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vináttulandsleikur: Payet tryggði Frökkum dramatískan sigur
Payet tryggði Frökkum sigur
Payet tryggði Frökkum sigur
Mynd: Getty Images
Frakkland 3 - 2 Kamerún
1-0 Blaise Matuidi (´20 )
1-1 Vincent Aboubakar (´22 )
2-1 Olivier Giroud (´41 )
2-2 Eric Maxim Choupo-Moting (´88 )
3-2 Dimitri Payet (´90 )

Seinni vináttuleik kvöldsins var að ljúka, en Frakkar fengu þá Kamerún í heimsókn.

Frakkar munu eins og flestir vita halda EM í næsta í mánuði og eru því í undirbúningi fyrir mótið.

Sem liður af þeim undirbúningi mætti liðið Kamerún í kvöld og náði liðið forystunni eftir 20 mínútna leik þegar Blaise Matuidi skoraði.

Vincent Aboubakar jafnaði metin fyrir gestina aðeins tveimur mínútum síðar, en undir lok fyrri hálfleiks náðu Frakkar aftur forystunni. Þá skoraði Olivier Giroud eftir magnaða sendingu Paul Pogba, en markið má sjá hér að neðan.

Kamerún náði að jafna þegar tvær mínútur voru eftir venjulegum leiktíma, en Dimitri Payet, leikmaður West Ham, sá til þess að franska liðið tók sigurinn með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu í viðbótartíma.

Markið hjá Giroud

Markið hjá Payet:

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner