Huginn 1 - 0 KV
1-0 Ingólfur Árnason ('51)
1-0 Ingólfur Árnason ('51)
Huginn fékk KV í heimsókn á Seyðisfjörð og stjórnaði mestum parti leiksins en gaf þónokkur færi á sér.
Fyrri hálfleikurinn var markalaus en Ingólfur Árnason kom heimamönnum yfir snemma í síðari hálfleik.
Nokkuð var um færi það sem eftir lifði leiks en hvorugu liði tókst að skora og dýrmæt þrjú stig komin í hús hjá Hugin.
Huginn deilir toppsæti 2. deildarinnar með ÍR sem á þó leik til góða. KV er í fimmta sæti deildarinnar, ellefu stigum frá toppliðunum.
Athugasemdir