Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 30. júní 2015 22:01
Arnar Ingi Ingason
Samsung vellinum
Ásgerður Stefanía: Ég var í nýjum skóm
Adda var frábær í leik kvöldsins.
Adda var frábær í leik kvöldsins.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Við þurftum sannarlega að hafa fyrir þessum sigri. Mér fannst þær berjast allan tímann,“ sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði kvennaliðs Stjörnunnar í samtali við Fótbolta.net.

Ásgerður og liðsfélagar hennar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu stelpurnar í Þrótti Reykjavík 5-1 á Samsung-vellinum í kvöld.

Þróttur hafði fyrir leikinn ekki enn þá skorað mark í fyrstu sex leikjum sínum í Pepsi-deildinni. Er ekkert erfitt að gíra sig upp í leik gegn svoleiðis liði?

„Nei, alls ekki. Við sáum það í gær að KR gerði jafntefli við Selfoss og það eru allir leikir sem við þurfum að mæta 100% tilbúnar í. Þær skora mark á móti okkur þannig við höfum ekkert efni á því að koma með hálfan haus í svona leik.“

Ásgerður skoraði tvö mörk í leiknum í dag og er þar af leiðandi komin með 4 mörk alls í deildinni í sumar. Ásgerður skoraði hins vegar ekkert mark í deildinni í fyrra.

„Ég var í nýjum skóm, ég vissi að ég myndi skora. Þetta eru senteraskór. Harpa hafði miklar áhyggjur fyrir leikinn að ég myndi ekkert gefa boltann. Það er kannski alveg rétt.“

„Við erum á ágætis róli. Bikarinn er næst og við einbeitum okkur bara að honum. Spilamennskan í dag var fín. Við hefðum mátt láta hann rúlla betur og nýtt okkur yfirburðina aðeins betur. Markmaðurinn þeirra átti samt góðan leik, þær börðust vel og áttu sinn þátt í að við skoruðum ekki fleiri mörk.“
Athugasemdir
banner
banner
banner