Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. júní 2015 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Huntelaar gæti farið til Lazio
Klaas-Jan Huntelaar.
Klaas-Jan Huntelaar.
Mynd: Getty Images
Hollenski framherjinn Klaas-Jan Huntelaar er líklega á förum frá Schalke í sumar og hefur hann verið orðaður við Lazio í ítölskum fjölmiðlum.

Þessi fyrrum framherji Real Madrid, AC Milan og Ajax er sagður vilja spila í Meistaradeild Evrópu, en Lazio tryggði sér sæti í þessari sterkustu keppni heims með því að hafna í 3. sæti ítölsku deildarinnar.

Huntelaar skoraði níu mörk í þýsku deildinni í vetur, en frammistaða hans í Meistaradeild Evrópu vakti nokkra athygli. Skoraði hann þar fimm mörk í átta leikjum.

Hann lék sem lánsmaður með AC Milan leiktíðina 2009-10 og skoraði þá sjö mörk í 25 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner