Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 30. júní 2015 23:45
Ívan Guðjón Baldursson
Myndir: Svíar gera grín að Kurzawa
Mynd: Getty Images
Svíar urðu í Evrópumeistarar U21 árs landsliða fyrr í kvöld eftir að hafa lagt Portúgali af velli í vítaspyrnukeppni.

Eftir sigurinn voru fagnaðarlæti Svía að hluta til tileinkuð Layvin Kurzawa, landsliðsmanni Frakka.

Frakkar mættu Svíum í umspilsleik um hvort liðið kæmist á lokakeppni EM. Frakkar unnu fyrri viðureignina 2-0 á heimavelli og voru 3-0 undir í Svíþjóð þegar Kurzawa skoraði útivallarmark fyrir Frakka sem hefði komið þeim á EM.

Kurzawa fagnaði markinu beint fyrir framan andlitið á John Guidetti, stjörnuleikmanni Svía, sem var ekki sáttur og skammaði Kurzawa. Skömmu síðar gerðu Svíar sigurmarkið og komust á EM á mjög dramatískan hátt. Guidetti nýtti tækifærið, hljóp að Kurzawa og hermdi eftir fagninu hans.
Athugasemdir
banner