Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. júní 2015 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Schlupp áfram hjá Leicester - Framlengdi samninginn
Jeffrey Schlupp.
Jeffrey Schlupp.
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Jeff Schlupp hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning hjá enska úrvalseildarliðinu Leicester.

Þessi 22 ára gamli landsliðsmaður Ghana átti eitt ár eftir af samningi sínum. Spilaði hann vel í úrvalsdeildinni í vetur og hafa Arsenal og Aston Villa verið orðuð við hann.

Nú er hinsvegar ljóst að hann mun spila áfram með uppeldisfélaginu sínu, en hann byrjaði að æfa með Leicester einungis 11 ára gamall.

Schlupp þótti efnilegur framherji á sínum yngri árum og fór meðal annars á reynslu til Manchester United fyrir örfáum árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner