Knattspyrnuráð karla ÍBV og Sead Gavranovic hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi hans við félagið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjamönnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjamönnum.
Leikmaðurinn kom frá danska félaginu Jammerbugt í upphafi tímabilsins.
„Knattspyrnuráð karla ÍBV óskar leikmanninum velfarnaðar í framtíðinni," segir í tilkynningunni en Gavranovic lék aðeins einn leik í Pepsi-deildinni.
ÍBV vann sigur gegn Breiðabliki í síðustu umferð en liðið er þó enn í fallsæti.
Athugasemdir