N1 mótið í knattspyrnu fer fram á Akureyri nú um helgina en þetta er í 30. sinn sem mótið er haldið.
Alls munu um 1.900 þátttakendur spila á mótinu frá 182 keppnisliðum.
Margir af landsliðsmönnum Íslands stigu sín fyrstu skref á mótum sem þessum og KA á Akureyri birti í dag skemmtilega mynd af mótinu frá árinu 2001.
Þar má sjá landsliðsfyrirliðann Aron Einar Gunnarsson í búningi Þórs á mótinu en hann skartaði glæsilegum fléttum á mótinu þetta árið.
Myndina má sjá hér að neðan.
30. N1 mót KA er í fullu fjöri á KA svæðinu, hér er landsliðsfyrirliðinn á mótinu árið 2001 @ronnimall #fotboltinet pic.twitter.com/YVEfIgS5o6
— KA (@KAakureyri) June 30, 2016
Athugasemdir