fim 30. júní 2016 12:45
Magnús Már Einarsson
EM-bjórinn Heimir á leiðinni á höfuðborgarsvæðið
Icelandair
Mynd: The Brothers Brewery
Frá því að EM í Frakklandi hófst í byrjun mánaðarins hefur EM bjórinn Heimir verið á boðstólnum á veitingastað Einsa kalda landsliðskokk í Vestmannaeyjum. Bjórinn hefur fengið góða dóma enda er hann léttur ljúfur og kátur eins og Heimir okkar Hallgrímsson landsliðsþjálfari.

Búið er að panta í Herjólf fyrir EM bjórinn Heimi og mætir hann á Ölhúsið – Ölstofa Hafnarfjarðar á Reykjavíkurvegi 60 á leikdegi Íslands og Frakklands.

Það er brugghúsið The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum sem bruggar og framleiðis Heimi en brugghúsið tók til starfa í ársbyrjun 2016.

Nýverið fékk The Brothers Brewery verðlaun fyrir besta bjór Bjórhátíðarinnar á Hólum en til þess hafa bjórar þess eingöngu verið seldir í Vestmannaeyjum en í síðustu viku kom til sölu bjór frá þeim á Public House á Laugavegi.

„Við ákváðum fyrir nokkrum vikum að heiðra Heimi með því að brugga sérstakan EM bjór og nefna hann eftir landsliðsþjálfaranum. Við höfðum samband við Heimi og gaf hann okkur sitt góðfúsalega leyfi fyrir þessu," Segir Kjartan Vídó einn eigenda The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum.

„Við tökum þetta að sjálfsögðu alla leið og fengum Gunnar Júl art til að hanna logo með Heimi í. Þar sem algjör EM sprengja gengur yfir þjóðina þá ákváðum við að opna fyrir sölu á fleiri stöðun en Einsa Kalda í eyjum og pöntuðum far fyrir nokkra bjórkúta með Herjólfi svo höfuðborgarbúar gætu drukkið nokkra Heimi yfir leiknum á sunnudaginn.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner