Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. júní 2016 11:21
Magnús Már Einarsson
Evra: England sýndi Íslandi ekki virðingu
Icelandair
Mynd: Getty Images
Patric Evra, landsliðsmaður Frakka, segir að liðið muni ekki vanmeta Íslendinga í leiknum í 8-liða úrslitum EM á sunnudag.

Evra hafði varað Englendinga við Íslendingum fyrir leik liðanna á mánudag. Hann segir enga möguleika á því að Frakkar vanmeti Íslendinga.

„England sýndi Íslandi ekki virðingu en við munum ekki vanmeta þá," sagði Evra á fréttamannafundi í dag.

„Enskir fjölmiðlamenn töldu að enska liðið væri betra en það er. Ísland verðskuldaði sigurinn og ég virði þá. Það verður erfitt að ná sigri."

Sjá einnig:
Evra: Hættið að gera ráð fyrir að England vinni Ísland
Athugasemdir
banner
banner
banner