Þó svo að við séum ekki komin lengra en í 8-liða úrslitin á EM hafa fleiri mörk verið skoruð á Evrópumótinu í ár en fyrir fjórum árum. Ástæðan er fjölgun liða á mótinu.
Alls voru 76 mörk skoruð í 31 leik á EM fyrir fjórum árum en í ár hafa verið skoruð 88 mörk í fyrstu 44 leikjunum.
Fjölgun liða hefur í för með sér fleiri leiki og fleiri mörk en alls fara 51 leikir fram á EM í sumar.
Til gamans má geta að Ísland hefur skorað sex af mörkunum á EM.
Athugasemdir