„Ég er ánægður að hafa skorað bara! Ná því bara úr systeminu og mark er mark þó það sé víti og ég er bara mjög ánægður með það." sagði Hólmbert Aron Friðjónsson eftir 2-1 sigur KR á Glenovan í kvöld.
Hólmbert kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu, hans fyrsta mark í sumar.
Hólmbert kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu, hans fyrsta mark í sumar.
Aðspurður um hvort þetta væri fyrsta af mörgum sagði Hólmbert:
„Ég vona það, vonandi er þetta bara búið að brjóta ísinn og ég tek þetta vonandi með mér inn í Pepsi-deildina."
Þá var hann spurður um brottför Bjarna Guðjónssonar í vikunni.
„Þetta er alltaf erfitt, það gekk bara ekki nógu vel og þá þarf að fórna einhverju og yfirleitt er það þjálfarinn, eins leiðinlegt og það er en svona er það."
Willum Þór Þórsson tók við af Bjarna en Hólmberti líst vel á sinn nýja þjálfara:
„Bara mjög vel, hann er öðruvísi þjálfari með aðrar áherslur og við erum bara að láta það tikka inn svona hægt og vel, og mér líst bara vel á þetta."
Þá var hann spurður um gang leiksins og styrk andstæðingsins.
„Mér fannst smá stress í okkur í byrjun, ég veit ekki af hverju það var, menn voru smá órólegir eitthvað og það gekk illa að halda boltanum. En eftir að við skorum náum við að slaka aðeins á og halda boltanum aðeins betur og við bara eiga leikinn."
„Það voru menn þarna úr formi alveg gjörsamlega en við náðum að klára þetta."
Athugasemdir