Martin Skrtel, varnarmaður Liverpool. hefur beðist afsökunar á ummælum á Instagram þar sem hann kallaði Jorgen Klopp, þjálfara Liverpool, typpahaus. (dickhead)
Mynd birtist af Skrtel og vini hans á Instagram þar sem nokkur myllumerki voru á myndinni en það seinasta var #kloppisadichead
Hann sagði síðan í ummælum við myndina að hann vonaðist til þess að Klopp myndi sjá umrædda mynd.
Skrtel hefur nú sent frá sér yfirlýsingu á Instagram þar sem hann segir að sökum annríkis hafi félagi hans séð um samfélagsmiðla sína undanfarið og að umræddur vinur hafi farið yfir strikið í gríni.
Athugasemdir