Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 30. júní 2016 12:14
Þorsteinn Haukur Harðarson
Stuðningsmaður Englands tapaði stórfé á sigri Íslands
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmaður enska landsliðsins gjörsamlega missti stjórn á skapi sínu eftir tap liðsins gegn Íslandi á mánudag

Hann reif í sundur peningaseðla og kastaði inn á völlinn á milli þess sem hann blótaði enska liðinu í sand og ösku.

Hann hefur nú stigið fram og greint frá því að hann hafi lagt 20 þúsund pund, tæplega 3,3 milljón íslenskar krónur, undir á sigur Englands í leiknum.

Hann var því ansi svekktur þegar í ljós kom að hann hafi tapað öllum þessum peningum.

Myndband af viðbrögðum hans má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner