Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. júlí 2013 13:29
Magnús Már Einarsson
KSÍ óskar eftir að Aron skipti um skoðun
Óskað eftir því að hann spili gegn Færeyjum
"Það er einfaldlega þannig að landsliðsmenn Íslands leika fyrir land og þjóð og hljóta fyrir heiður og sæmd."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir yfirlýsingu Arons Jóhannssonar í gær um að hann hyggist leika með bandaríska landsliðinu í framtíðinni en ekki því íslenska.

Í yfirlýsingunni kemur fram að það sé eindregin ósk KSÍ að Aron snúi baki við hugmyndum sínum um að skipta um landslið.

Í yfirlýsingunni kemur einnig fram að KSÍ hafi óskað eftir því að Aron leiki með íslenska landsliðinu í vináttuleik gegn Færeyjum þann 14. ágúst næstkomandi.

Yfirlýsingu KSÍ má sjá í heild hér að neðan.


Aron Jóhannsson á að leika fyrir Ísland
Aron Jóhannsson er Íslendingur fæddur í Bandaríkjunum 1990 hvar hann bjó fyrstu ár ævinnar. Foreldrar Arons eru Íslendingar. Aron fékk knattspyrnulegt uppeldi innan vébanda KSÍ hjá Fjölni upp alla yngri flokki (með stuttri dvöl hjá Breiðabliki) og lék síðan í meistaraflokki Fjölnis þar til hann gekk til liðs við AGF í Danmörku 1. september 2010.

Aron Jóhannsson lék 10 landsleiki með U21-liði Íslands 2011 og 2012. Af þessum 10 leikjum voru 8 í Evrópukeppni landsliða og var Aron í byrjunarliði Íslands í þeim öllum.

Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) heimilar leikmönnum að sækja einu sinni um að skipta um landslið uppfylli þeir tiltekin skilyrði jafnvel þó þeir hafi leikið með yngri landsliðum svo fremi sem þeir hafi ekki tekið þátt í opinberum leik með A-landsliðinu. Eitt þeirra skilyrða sem heimilar leikmönnum skipti er að þeir hafi verið fæddir í landinu sem þeir óska eftir að leika fyrir.

Aron hefur síðasta árið ekki getað svarað kalli A-landsliðsþjálfara KSÍ vegna meiðsla en á sama tíma bárust fregnir um að landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefði áhuga á leikmanninum. Tengsl Arons við knattspyrnu í Bandaríkjunum eru engin.

Í gær birtist yfirlýsing frá Aroni þess efnis að leikmaðurinn kjósi að leika fyrir A-landslið Bandaríkjanna. Það eina sem KSÍ hefur fengið ábendingar um frá hagsmunaaðila er að tekjumöguleikar Arons sem leikmanns fyrir Bandaríkin séu allt aðrir og meiri í formi styrktar- og auglýsingatekna en sem leikmanns Íslands. Það er einfaldlega þannig að landsliðsmenn Íslands leika fyrir land og þjóð og hljóta fyrir heiður og sæmd.

Það er eindregin ósk KSÍ að Aron snúi baki við hugmyndum sínum um að skipta um landslið. Aron er Íslendingur í húð og hár sem við þörfnumst í harðri keppni á alþjóðavettvangi. Aron hefur þegar leikið 10 U21-landsleiki fyrir Ísland og þar á framtíð hans að vera. Vonandi mun almenningur og fjölmiðlar bregðast við og skora á Aron að halda áfram að leika fyrir Ísland. KSÍ hefur þegar óskað eftir þátttöku Arons í næsta A-landsleik Íslands gegn Færeyjum 14. ágúst nk. Það eru engin rök fyrir því að Aron afsali sér íslensku ríkisfangi sínu í knattspyrnu.

Knattspyrnusamband Íslands
Athugasemdir
banner
banner
banner