Ennþá er möguleiki á að Fabio Borini fari frá Liverpool til Sunderland að sögn Gus Poyet stjóra síðarnefnda liðsins.
Borini var í láni hjá Sunderland á síðasta tímabili og á dögunum náði félögin samkomulagi um kaupverð upp á 14 milljónir punda.
Borini var í láni hjá Sunderland á síðasta tímabili og á dögunum náði félögin samkomulagi um kaupverð upp á 14 milljónir punda.
Hinn 23 ára gamli Borini fór hins vegar með Liverpool í æfingaferð til Bandaríkjanna til að sanna sig og þar meiddist hann á öxl í lek gegn Roma.
,,Það er verið að skoða axlar meiðslin. Það stöðvaði þetta í smástund," sagði Poyet.
,,Við munum sjá til. Ég hef ekki rætt við hann en félagið hefur gert það. Við vitum hvar við stöndum."
Athugasemdir