Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. júlí 2014 11:15
Magnús Már Einarsson
Gerrard: Þrír verstu mánuðirnir á ævi minni
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að síðustu þrjár mánuðir hafi verið þeir verstu á ævinni.

Liverpool missti af enska meistaratitlinum en Gerrard gerði sig sekan um slæm mistök í leik gegn Chelsea þar sem hann rann og missti boltann.

Gerrard var síðan fyrirliði enska landsliðsins sem datt út í riðlakeppninni á HM.

,,Þetta eru líklega þrír verstu mánuðirnir á ævi minni," sagði Gerrard.

,,Ég hef lent í tveimur ótrúlegum lágpunktum á stuttum tíma og þetta tímabil verður mikil prófraun fyrir mig. Get ég komist aftur í gang eftir þetta? Ég hef trú á því."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner