Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. júlí 2014 09:34
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Þór Júlíusson í HK (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur fengið Guðmund Þór Júlíusson á láni frá Fjölni út tímabilið.

Guðmundur Þór er tvítugur en hann getur spilað allar stöður í vörninni.

Í sumar hefur Guðmundur komið við sögu í fjórum leikjum í Pepsi-deildinni og tveimur leikjum í Borgunarbikarnum með Fjölni.

Í fyrra spilaði Guðmundur tvo leiki með Fjölni í 1. deildinni áður en hann fór í Val á láni síðari hluta tímabils.

Guðmundur gæti spilað sinn fyrsta leik með HK í kvöld þegar liðið mætir KA í 1. deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner