Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur var gríðarlega ánægður með sína menn sem tryggðu sér sæti í úrslitaleik Borgunarbikarsins eftir sigur á Víkingum í vítaspyrnukeppni.
Staðan var markalaus eftir venjulegann leiktíma sem og framlengingu.
Staðan var markalaus eftir venjulegann leiktíma sem og framlengingu.
,,Hún er mögnuð, frammúrskarandi góð, okkur líður mjög vel núna. Mikil útrás eftir að seinasta vítið fór inn og tryggði okkur áfram."
Kristján segir að leikurinn hafi spilast eins og bæði lið lögðu upp með.
,,Ég held hann hafi spilast eins og bæði lið lögðu hann upp. Vildu ekki gefa færi á sér, vildu ekki lenda undir. Það var erfitt að spila og mikill vindur, hann tók völdin."
,,Okkar varnarleikur gékk mjög vel upp og sóknarleikurinn inn á milli. Við sköpuðum ekki mikið af færum en gáfum ekki mörg færi á okkur."
,,Ég held ekki, ég held taktíkslega séð hafi bæði lið spilað þetta mjög vel. Ég held bæði lið hafi reynt að sækja til sigurs."
Aron Rúnarsson Heiðdal spilaði sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í leiknum og stóð sig vel. Kristján var afar sáttur við strákinn.
,,Mér fannst hann standa sig gríðarlega vel og hann skilaði því sem við bjuggumst við af honum."
,,Jú, það er mjög gott, við vorum búnir að æfa þetta í gær og fara í gegnum allan pakkann."
Viðtalið við Kristján má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir