Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. júlí 2014 13:05
Elvar Geir Magnússon
Lukaku skrifar undir fimm ára samning við Everton
Lukaku fagnar marki fyrir Everton.
Lukaku fagnar marki fyrir Everton.
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku er staddur í flugvél á leið til Englands þar sem hann mun skrifa undir fimm ára samning við Everton. Þetta fullyrða belgískir fjölmiðlar.

Á Twitter sagði sóknarmaðurinn að hann væri tilbúinn að skrifa nýjan kafla á ferli sínum og birti mynd af sér um borð í flugvél.

Þessi 21 árs belgíski landsliðsmaður lék með Everton á síðasta tímabili á lánssamningi frá Chelsea en er nú alfarið að ganga í raðir félagsins.

Sagt er að staðfesting ætti að berast frá Everton seinna í dag.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner