Franski miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin hefur óskað formlega eftir sölu frá Southampton.
Schneiderlin er allt annað en sáttur við að Southampton ætli ekki að leyfa honum að ganga í raðir Tottenham.
Schneiderlin er allt annað en sáttur við að Southampton ætli ekki að leyfa honum að ganga í raðir Tottenham.
Luke Shaw, Adam Lallana, Rickie Lambert, Calum Chambers og Dejan Lovren hafa allir yfirgefið herbúðir Southampton í sumar og Schneiderlin vill feta í þeirra fótspor.
,,Eftir ótrúlegt sex ára ferðalag hefur Southampton EYÐILAGT allt á einum klukkutíma," sagði Schneiderlin á Twitter í gær.
Schneiderlin kom til Southampton frá Strasbourg á 1,2 milljónir punda árið 2008.
Athugasemdir