mið 30. júlí 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Totti með sigurmark Roma gegn Madrid - Man Utd vann eftir vító
Francesco Totti sá um Real Madrid
Francesco Totti sá um Real Madrid
Mynd: Getty Images
A-riðill æfingamótsins Champions Cup er að skýrast en Manchester United er á toppnum eftir að hafa lagt Internazionale að velli eftir vítaspyrnukeppni á meðan Roma vann Real Madrid óvænt.

Francesco Totti skoraði eina marki er Roma vann Real Madrid. Hann gerði þá vel er hann tók góða hreyfingu áður en hann fékk boltann eftir fyrirgjöf og setti boltann í netið. Snyrtilegt hjá ítalska snillingnum.

Manchester United vann Internazionale í vítaspyrnukeppni fyrr um kvöldið en staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma. Ashley Young, Tom Cleverley, Shinji Kagawa, Javier Hernandez og Darren Fletcher skoruðu allir úr vítaspyrnum sínum.

Roma getur enn komist í úrslitaleik mótsins en liðið þarf að leggja Inter að velli og vonast til þess að Man Utd tapi fyrir Real Madrid.

Úrslit og markaskorarar:

Roma 1 - 0 Real Madrid
1-0 Francesco Totti ('57 )

Manchester United 0 - 0 Internazionale (5-3 eftir vítaspyrnukeppni)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner