Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, var að vonum kampakátur eftir 4-1 sigur sinna manna gegn ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Bjarni segir þó ótímabært að fagna, enda ætli hans menn að lyfta bikarnum á Laugardalsvelli þann 15. ágúst.
Bjarni segir þó ótímabært að fagna, enda ætli hans menn að lyfta bikarnum á Laugardalsvelli þann 15. ágúst.
Lestu um leikinn: KR 4 - 1 ÍBV
„Það er vissulega skemmtilegara en að vita að við værum ekki að fara að spila bikarúrslitaleik, það er alveg hárrétt," sagði Bjarni, aðspurður hvort það væri ekki gott að fara inn í verslunarmannahelgina vitandi að úrslitaleikurinn væri í höfn.
„En við erum ekkert að tapa okkur í neinni gleði, við erum komnir þangað sem við ætluðum okkur en eigum eftir að taka stærsta skrefið í því, það er að vinna sjálfan úrslitaleikinn."
Viðtalið við Bjarna má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir