Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júlí 2015 16:41
Magnús Már Einarsson
Chancel Mbemba til Newcastle (Staðfest)
Mynd: Newcastle
Newcastle hefur keypt varnarmanninn Chancel Mbemba frá Anderlecht í Belgíu.

Í gegnum tíðina hefur verið erfitt að staðfesta aldur Mbema en Newcastle segir að hann sé tvítugur.

Mbemba skrifaði undir fimm ára samning hjá Newcastle.

„Ég er mjög ánægður með að vera hér," sagði Mbemba eftir að hann skrifaði undir.

„Þetta er stærsta deild í heimi og ég er mjög stoltur af því að fara í treyjuna hjá þessu liði."



Athugasemdir
banner
banner
banner