Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júlí 2015 10:21
Magnús Már Einarsson
PSG nálægt því að kaupa Di Maria
Mynd: Getty Images
Laurent Blanc, þjálfari PSG, segir að félagið sé nálægt því að kaupa Angel Di Maria frá Manchester United.

Angel Di Maria hefur verið hvergi sjáanlegur í æfingaferð Manchester United í Bandaríkjunum.

Di Maria kom til Manchester United á 59,7 milljónir punda í fyrra en náði sér ekki á strik á sínu fyrsta tímabili á Englandi.

Nu lítur allt út fyri rað þessi 27 ára gamli Argentínumaður sé á leið til PSG.

„Manchester United og PSG eru tvö stór félög í viðræðum og það getur verið erfitt. Við erum samt nálægt niðurstöðu," sagði Laurent Blanc þjálfari PSG eftir 2-0 sigur á Manchester United í æfingaleik í nótt.
Athugasemdir
banner
banner
banner