Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 30. júlí 2015 12:30
Magnús Már Einarsson
Pulis vill fá Lambert: Eins og nýr bíll úr bílskúrnum
Mynd: Getty Images
Tony Pulis, stjóri WBA, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að krækja í Rickie Lambert framherja Liverpool.

„Rickie er á lausu. Liverpool hefur látið okkur vita og við höfum áhuga. Það er mjög mikilvægt að við fáum leikmenn sem geta skorað mörk," sagði Pulis.

„Frá því sem ég heyri hjá fólki í Liverpool þá er hann í mjög góðu formi og hann vill spila fótbolta."

„Hann spilaði ekki á síðasta ári svo þetta er eins og að fá glænýjan bíl úr bílskúrnum ef við kaupum hann."


Lambert er 33 ára gamall en hann kom til Liverpool frá Southampton fyrir ári síðan.
Athugasemdir
banner
banner