Afturelding hefur fengið þrjá portúgalska leikmenn til liðs við sig fyrir lokasprettinn í Pepsi-deild kvenna.
Leikmennirnir eru Daniela Filipa Alves, Isabel Osorio og Sara Granja.
Sara er 26 ára miðjumaður sem kemur frá Valadares Gaja í Portúgal þar sem hún hefur leikið undanfarin ár. Hún hefur leikið bæði með U16 og U19 ára landsliði Portugals.
Fyrr í mánuðinum kom framherjinn Sigríður Þóra Birgisdóttir einnig aftur í Aftureldingu úr Stjörnunni.
Afturelding er í botnsætinu í Pepsi-deild kvenna með eitt stig en liðið er fimm stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir