fim 30. júlí 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Van Gaal: Ekki góð staða fyrir De Gea
Mynd: EPA
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, segir að orðrómar í kringum David De Gea hafi truflað leikmanninn í sumar.

De Gea vill fara til Real Madrid en Manchester United vill ekki selja nema Sergio Ramos komi frá Spáni í staðinn.

Real Madrid ætlar ekki að selja Ramos og því lítur út fyrir að ekkert gerist í félagaskiptunum í sumar.

Hinn 24 ára gamli De Gea verður samningslaus næsta sumar en Van Gaal er ekki ánægður með stöðuna.

„Þetta er ekki góð staða fyrir David De Gea eða félagið því að hann vill fara," sagði van Gaal eftir 2-0 tap United gegn PSG í nótt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner