Miðjumaðurinn Andy King er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Leicester City.
King er 27 ára gamall og hefur gert 53 mörk í 295 deildarleikjum sem leikmaður Leicester auk þess að eiga 36 landsleiki að baki fyrir Wales.
King er 27 ára gamall og hefur gert 53 mörk í 295 deildarleikjum sem leikmaður Leicester auk þess að eiga 36 landsleiki að baki fyrir Wales.
King tók þátt í 29 leikjum er Leicester varð Englandsmeistari á síðasta tímabili og skoraði hann þrjú mörk.
King er annar leikmaðurinn sem skrifar undir hjá Leicester á skömmum tíma eftir að vinstri bakvörðurinn Ben Chilwell krotaði undir samning í gær.
Athugasemdir