Heimild: Goal
Ítalska stórveldið Inter Milan er búið að staðfesta kaup á varnarmanninum Christian Ansaldi, en hann kemur til liðsins frá Genoa.
Ansaldi var í láni hjá Genoa á síðasta tímbili frá Zenit í Rússlandi, en eftir tímabilið ákvað Genoa að nýta sér ákvæði í samningi Ansaldi og kaupa hann frá Zenit.
Það var hins vegar fastlega búist við því að hann myndi aftur færa sig um set og sú er raunin. Hann hefur nú þegar spilað æfingaleik með Inter, en félagið staðfesti kaupin á honum í dag.
Inter staðfesti það að hinn 29 ára gamli Ansaldi væri kominn til félagsins, en auk hans hafa Caner Erkin og Ever Banega samið við félagið í sumar.
Ekki var gefið upp hversu langan samning Ansaldi fékk, en Diego Laxalt, sem var í láni hjá Genoa á síðasta tímabili, fer í hina áttina sem hluti af kaupverðinu.
Cristian #Ansaldi has completed his move to #Inter! https://t.co/OmeJ6olShx #WelcomeAnsaldi #FCIM pic.twitter.com/C3HhrZG6Pr
— F.C. Internazionale (@Inter_en) July 30, 2016
Athugasemdir