Stuðningsmenn Arsenal eru margir hverjir orðnir þreyttir á því að Arsene Wenger missi af stórum leikmönnum. Til dæmis um þetta má nefna Gonzalo Higuain, sem lengi hafði verið orðaður við Arsenal, en hann samdi við Juventus.
Arsenal hefur samið við Rob Holding og Granit Xhaka, en stuðningsmenn Arsenal vilja sjá meira frá Wenger á markaðnum.
Riyad Mahrez, leikmaður Leicester, hefur verið sterklega orðaður við Arsenal upp á síðkastið, en enn er óvíst hvað gerist í þeim efnum.
Stuðningsmenn Arsenal eru greinilega spenntir fyrir Mahrez, sem átti magnað tímabil er Leicester varð meistari á síðasta tímabili. Einn stuðningsmaður rakst á Wenger, sem var hjólandi. Stuðningsmaðurinn hljóp á eftir honum og bað hann um að kaupa Mahrez.
„Bara Mahrez, bara Mahrez," sagði stuðningsmaðurinn við Wenger, en myndband af þessu má sjá hér að neðan.
Only Mahrez, only Mahrez, oke? Please!
— Gooners Report Indo (@Gooners_Report) July 30, 2016
Dan Wenger hanya tersenyum saja. :)) pic.twitter.com/aOlhlENOty
Athugasemdir