Varnarjaxlinn Per Mertesacker mun sennilega ekki spila meira með Arsenal á þessu ári, en frá þessu greinir íþróttafréttamaðurinn Kaveh Solhekol hjá Sky Sports
Mertesacker hefur verið mikilvægur í vörn Arsenal undanfarin ár og hafa hann og Laurent Koscielny myndað sterkt miðvarðarpar.
Mertesacker hefur verið mikilvægur í vörn Arsenal undanfarin ár og hafa hann og Laurent Koscielny myndað sterkt miðvarðarpar.
Hann verður núna sennilega frá til áramóta og því spurning hvað Arsene Wenger gerir. Hann hefur staðfest það að hann vilji fá miðvörð og sóknarmann til að bæta við hópinn, en hvað varðar miðverði þá hefur Shokdran Mustafi hjá Valencia verið orðaður við enska félagið.
Mertesacker er léttur á því þótt að meiðsli séu að hrjá hann og hann segir að hann geti leyst sóknarmannavanda Arsenal þegar hann kemur til baka. Hann lofar meira að segja 20 mörkum.
Hér að neðan má sjá þetta.
Athugasemdir