Manchester United hafði betur gegn Galatasaray þegar liðin mættust í æfingaleik í dag. Stuðningsmenn geta verið nokkuð kátir eftir leikinn, en Zlatan Ibrahimovic lék sinn fyrsta leik fyrir sitt nýja félag.
Hann var ekki lengi að láta til sín taka, en hann skoraði strax á fjórðu mínútu. Markið var gríðarlega flott, en það kom eftir sendingu frá Antonio Valencia.
Hann var ekki lengi að láta til sín taka, en hann skoraði strax á fjórðu mínútu. Markið var gríðarlega flott, en það kom eftir sendingu frá Antonio Valencia.
Jose Mourinho gerði nokkrar breytingar í hálfleik, en þar á meðal var hinn bráðefnilegi Marcus Rashford settur inn fyrir Zlatan Ibrahimovic.
Rashford sló í gegn á síðasta tímabili og hann virðist ætla að halda áfram þar sem hann hætti. Hann sýndi gríðarlegan hraða þegar hann fiskaði vítaspyrnu fyrir United, en úr vítaspyrnunni skoraði Wayne Rooney.
Zlatan var gríðarlega ánægður með Rashford og stóð upp og klappaði fyrir honum. Þetta má sjá á myndbandinu sem er hér að neðan.
This from Rashford 😳
— All Football News (@AllFootballLive) July 30, 2016
Zlatan is impressed. pic.twitter.com/hL4j8SLRHW
Athugasemdir