Þróttur Vogum hefur krækt í Tómas Inga Urbancic á láni frá HK út tímabilið.
Tómas Ingi er tvítugur kantmaður sem var í unglingaliði Reading frá 2013 til 2015 og aftur síðastliðið vor, áður en hann gekk til liðs við HK í maí.
Tómas Ingi er tvítugur kantmaður sem var í unglingaliði Reading frá 2013 til 2015 og aftur síðastliðið vor, áður en hann gekk til liðs við HK í maí.
Tómas lék tvo leiki í bikar og einn í deild með Víkingi R. á síðasta tímabili og í sumar hefur hann leikið tvo deildarleiki og einn bikarleik með HK.
Þróttur Vogum er í neðri hluta 3. deildar með þrettán stig eftir tíu umferðir.
Athugasemdir