Sænska ofurstjarnan Zlatan Ibrahimovic segir að stuðningsmenn Manchester United séu jafn spenntir og hann fyrir fyrsta leik sínum með liðinu gegn Galatasaray í kvöld. Leikurinn fer fram í heimalandi Zlatan, Svíðþjóð.
Zlatan er stærsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho hefur fengið til United í sumar, en einnig hafa Eric Bailly og Henrik Mkhitaryan samið við félagið.
Zlatan er stærsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho hefur fengið til United í sumar, en einnig hafa Eric Bailly og Henrik Mkhitaryan samið við félagið.
„Allir hafa verið að bíða eftir þessu aungabliki," sagði Zlatan við MUTV.
„Það hefur mikið verið talað um þetta og að leika fyrsta leikinn í heimalandinu er frábært. Ég held að stuðningsmennirnir séu að bíða eftir því að ég komi aftur og þeir eru að bíða eftir að njóta, ekki bara míns, heldur einnig liðsins."
Nú er byrjunarlið United fyrir æfingaleikinn gegn Galatasaray klárt og Zlatan er í byrjunarliðinu. Liðið má sjá hér að neðan.
Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Valencia, Bailly, Blind, Shaw; Schneiderlin, Herrera, Mkhitaryan; Rooney, Ibrahimovic, Martial.
Athugasemdir