Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. ágúst 2014 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Alex McCarthy til QPR (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið QPR hefur fest kaup á Alex McCarthy frá Reading en hann gerði fjögurra ára samning við QPR.

McCarthy, sem er 24 ára gamall, komst inn í byrjunarlið Reading á síðustu leiktíð en hann var meðal annars kallaður inn í enska landsliðshópinn á síðasta ári.

QPR er þegar með Robert Green í markinu en McCarthy á að halda honum við efnið og berjast um stöðuna í liðinu.

,,Ég er í skýjunum með að vera kominn aftur í ensku úrvalsdeildina. Þegar ég var yngri þá dreymdi maður alltaf um að spila í bestu deild heims. Ég fékk smá fnyk af því hjá Reading en hann að hingað aftur er frábært," sagði hann í samtali við heimasíðu QPR.
Athugasemdir
banner
banner
banner