Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. ágúst 2014 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea hefur enn áhuga á að fá Remy
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur áhuga á því að fá Loic Remy frá QPR en liðið hefur lengi vel haft áhuga á honum.

Liverpool var nálægt því að ganga frá kaupum á Remy á dögunum en hann féll á læknisskoðun og því varð ekkert úr því.

Chelsea lýsti yfir áhuga sínum á Remy en ekkert hefur þróast í þeim málum. Chelsea hefur þó enn áhuga á að fá hann en liðið er að missa Fernando Torres til AC Milan.

Didier Drogba hefur verið að glíma við meiðsli og er því þörf á öðrum framherja til þess að styðja Diego Costa á toppnum.

Þetta ætti allt að koma í ljós á næstu dögum en nokkrir dagar eru eftir af glugganum og gæti margt gerst á síðustu dögunum.
Athugasemdir
banner
banner