Enska úrvalsdeildin tekur eina umferð á sig áður en landsleikjahléið fer af stað en það eru hörkuleikir á dagskrá.
Louis van Gaal og félagar í Manchester United þurfa að girða sig í brók eftir hrikalega byrjun í ensku úrvalsdeildinni og í enska bikarnum á dögunum en liðið heimsækir Burnley í hádeginu.
Englandsmeistaralið Manchester City fær Stoke City í heimsókn og þá fær Newcastle United lið Crystal Palace í heimsókn.
QPR og Sunderland eigast við og þá fá Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea lið WBA í heimsókn á Liberty vellinum.
West Ham fær Southampton í heimsókn og lokaleikur dagsins er stórleikur Everton og Chelsea.
Leikir dagsins:
11:45 Burnley - Manchester United
14:00 Manchester City - Stoke City
14:00 Newcastle United - Crystal Palace
14:00 QPR - Sunderland
14:00 Swansea City - WBA
14:00 West Ham - Southampton
16:00 Everton - Chelsea
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir