Radamael Falcao framherji Monaco, segist ekki hafa birt skilaboðin sem birtust á Twitter aðgangi hans fyrri í dag. Í þeim stóð að hann væri á leiðinni til Real Madrid og það væri draumur að rætast.
Þeim skilaboðum var svo eytt og Falcao skrifaði þess í stað að hann hafi ekki skrifað þessi skilaboð. Það hafi verið brotist inn á Twitter aðgang hans og þessi skilaboð birt.
Þeim skilaboðum var svo eytt og Falcao skrifaði þess í stað að hann hafi ekki skrifað þessi skilaboð. Það hafi verið brotist inn á Twitter aðgang hans og þessi skilaboð birt.
Þrátt fyrir það hefur SkyBet lokað fyrir veðmál á félagsskipti Falcao.
Þar spila skilaboðin á Twitter vissulega inn í, en einnig sú staðreynd að hann var ekki í leikmannahóp Monaco í dag.
Leikmaðurinn er því sennilegast á förum frá Monaco. Mörg lið berjast um framherjann knáa og má telja Real Madrid líklegasta áfangastað.
Athugasemdir