lau 30. ágúst 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Bikarúrslitaleikur kvenna
Selfoss er í bikarúrslitum í fyrsta skipti.
Selfoss er í bikarúrslitum í fyrsta skipti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn mæta BÍ/Bolungarvík.
Skagamenn mæta BÍ/Bolungarvík.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Það er alltaf nóg um að vera í íslenska boltanum og í dag fer bikarúrslitaleikur kvenna fram á Laugardalsvelli þar sem Stjarnan og Selfoss eigast við.

tveir leikir fara fram í fyrstu deild karla í dag og þar getur ÍA farið langleiðina með að koma sér upp í Pepsi-deildina.

Þróttur og Tindastóll mætast í hörkuleik á Valbjarnarvelli klukkan 13:00 á meðan ÍA fær BÍ/Bolungarvík í heimsókn á Norðurálsvöllinn.

Völsungur fær Gróttu í heimsókn en gestirnir geta styrkt stöðu sína í baráttunni um sæti í fyrstu deildinni. Þá getur Fjarðabyggð styrkt stöðu sína á toppnum ef liðið klárar KF á heimavelli. Þá er mikil barátta á botninum sem verður í gangi fram á síðustu umferð.

Þá hefst úrslitakeppnin í fjórðu deild með látum en fjórir leikir eru á dagskrá.

Úrslit og markaskorarar:

Borgunarbikar kvenna
16:00 Selfoss-Stjarnan (Laugardalsvöllur)

1. deild karla 2014
13:00 Þróttur R.-Tindastóll (Valbjarnarvöllur)
14:00 ÍA-BÍ/Bolungarvík (Norðurálsvöllurinn)

2. deild karla 2014
14:00 Völsungur-Grótta (Húsavíkurvöllur)
14:00 Dalvík/Reynir-Huginn (Dalvíkurvöllur)
14:00 Ægir-Sindri (Þorlákshafnarvöllur)
16:00 Fjarðabyggð-KF (Eskjuvöllur)

3. deild karla 2014
14:00 Magni-Víðir (Grenivíkurvöllur)
14:00 Leiknir F.-Berserkir (Búðagrund)
14:00 KFR-Grundarfjörður (SS-völlurinn)

1. deild kvenna A-riðill
13:00 Haukar-Víkingur Ó. (Schenkervöllurinn)
13:00 Hamrarnir-Fjölnir (Boginn)
13:00 HK/Víkingur-Keflavík (Víkingsvöllur)
14:00 BÍ/Bolungarvík-Grindavík (Skeiðisvöllur)

1. deild kvenna B-riðill
13:00 Álftanes-Sindri (Bessastaðavöllur)

4. deild úrslitakeppni
14:00 Vængir Júpíters - Álftanes (Fjölnisvöllur)
14:00 Þróttur V. - KFG (Vogabæjarvöllur)
14:00 Léttir - KFS (Hertz völlurinn)
18:00 Kári - KH (Akraneshöllin)
Athugasemdir
banner
banner
banner