Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. ágúst 2014 12:44
Magnús Már Einarsson
Kristján Hauksson tekur slaginn með Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Varnarmaðurinn Kristján Hauksson hefur skrifað undir nýjan eins og hálfs árs samning við Fylki.

Kristján spilaði með Fylkismönnum í Pepsi-deildinni í fyrra eftir að hafa áður verið hjá uppeldisfélagi sínu Fram.

Í vetur tók Kristján frí frá fótbolta vegna anna í námi en hann er í læknisfræði.

Hann hefur hins vegar tekið fram skóna á nýjan leik og um síðustu helgi kom hann við sögu í sigri á Val.

Kristján mun núna leika áfram með Fylki út tímabilið sem og á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner