Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 30. ágúst 2014 07:00
Magnús Már Einarsson
Skiltum með myndum af Stjörnustelpum stolið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Selfoss mætast í úrslitum Borgunarbikars kvenna á Laugardalsvelli í dag klukkan 16:00.

Stjarnan auglýsir eftir skiltum af leikmönnum félagsins sem virðist hafa verið stolið.

Fréttatilkynning frá Stjörnunni
Stjörnuæði hefur gripið um sig á Íslandi undanfarnar vikur og ekki síst í Garðabæ og keppist fólk um að verða sér úti um stjörnuvarning.

Í aðdraganda bikarúrslitaleiks kvenna sem fram fer á Laugardalsvelli laugardag 30. ágúst 2014 útbjó Stjarnan auglýsingaskilti með myndum af leikmönnum meistarflokks kvenna. Þeim var komið fyrir á nokkrum stöðum víðs vegar um bæinn á miðvikudag en í gær voru þrjú af þessum skiltum horfin. Hvort sem þeim hafi verið stolið eða þau fjarlægð af æstum aðdáendum sem hugsanlega hafa gert þau að veggskrauti heima hjá sér, saknar auglýsingadeild Stjörnunnar þeirra.

Ef þú hefur séð til skiltanna eða veist um afdrif þeirra þá má koma skilaboðum til knattspyrnudeildar á póstfangið [email protected]. Jafnframt skorum við á þig til þess að mæta á leikinn á laugardag og styðja þessar frábæru knattspyrnukonur til sigurs og lofa þær frábærri skemmtun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner