sun 30. ágúst 2015 16:00
Arnar Geir Halldórsson
2.deild: Höttur vann mikilvægan útisigur
Höttur vann mikilvægan sigur á KF
Höttur vann mikilvægan sigur á KF
Mynd: Twitter
KF 3-4 Höttur
0-1 Óttar Steinn Magnússon (´12)
0-2 Högni Helgason (´28)
0-3 Garðar Már Grétarsson (´30)
1-3 Jökull Steinn Ólafsson (´46)
2-3 Jordan Chase Tyler (´60)
2-4 Runólfur Sveinn Sigmundsson (´64)
3-4 Alexander Már Þorláksson (´90)

KF og Höttur áttust við í 2.deildinni í dag en leiknum var frestað í gær vegna úrhellisrigningar á Ólafsfirði.

Gestirnir mættu vel stemmdir til leiks en bæði lið eru nokkrum stigum frá fallsæti og því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða.

Höttur leiddi 3-0 í hálfleik. Heimamenn virtust ætla að koma til baka í síðari hálfleik en náðu ekki að jafna metin og fóru Hattarmenn að lokum með 4-3 sigur af hólmi.

Höttur fer þar með uppfyrir KF í 6.sæti deildarinnar en KF er í því sjöunda með 21 stig, aðeins þrem stigum meira en Tindastóll sem er í næstneðsta sæti.

Markaskorarar af Úrslit.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner