Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 30. ágúst 2015 19:27
Gabríel Sighvatsson
Ási Arnars: Öndum ekki léttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV lagði Keflavík 3-0 á Hásteinsvelli rétt í þessu. Ásmundur Arnarson þjálfari Eyjaliðsins var að vonum sáttur með niðurstöðuna.

Lestu um leikinn: ÍBV 3 -  0 Keflavík

„Ég held þetta hafi verið okkar besti leikur síðan ég tók við liðinu og ég er gríðarlega ánægður með strákana og leik liðsins í dag," sagði Ási.

„Okkur gekk illa að halda boltanum og vorum sundurslitnir í síðasta leik. Við fórum þá yfir skipulagið og í dag gekk þetta eiginlega bara fullkomlega upp,"

„Þeir komu extra grimmir í seinni hálfleik, þetta var síðasti séns hjá þeim og við þurftum að verjast aðeins betur á þeim tímapunkti sem við gerðum"
sagði Ási.

ÍBV er eftir sigurinn fjórum stigum frá fallsæti.

„Þetta eru "crucial" þrjú stig fyrir okkur en við öndum ekki léttar fyrr en þetta er búið," sagði Ási að lokum.
Athugasemdir
banner