Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. ágúst 2015 13:00
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: SkySports 
Carragher hrifinn af miðvarðarpari Man Utd
Mynd: Getty Images
Liverpool goðsögnin Jamie Carragher hrífst af samvinnu Chris Smalling og Daley Blind.

Carragher starfar sem sérfræðingur hjá Sky sjónvarpsstöðinni og sagði í upphitun fyrir leik Swansea og Man Utd síðar í dag að miðvarðapar Man Utd hafi komið mörgum á óvart.

Man Utd hefur ekki enn fengið á sig mark í deildinni en Blind lék aðallega á miðjunni eða í vinstri bakverði á síðustu leiktíð.

„Þeir virðast hafa unnið góða vinnu á æfingarsvæðinu með Chris Smalling og Daley Blind og það hefur hjálpað þeim”, sagði Carragher.

„Samvinna þeirra hefur litið mjög vel út. Það voru efasemdir um að Blind gæti spilað þarna en þeir hafa virkað mjög öruggir og sterkir".

Leikur Swansea og Man Utd hefst klukkan 15 en Swansea vann báðar viðureignir liðanna á síðustu leiktíð.

Athugasemdir
banner
banner
banner