Southampton 3 - 0 Norwich
1-0 Graziano Pelle ('45 )
2-0 Dusan Tadic ('64 )
3-0 Dusan Tadic ('67 )
Rautt spjald:Steven Whittaker, Norwich ('31)
1-0 Graziano Pelle ('45 )
2-0 Dusan Tadic ('64 )
3-0 Dusan Tadic ('67 )
Rautt spjald:Steven Whittaker, Norwich ('31)
Southampton fékk Norwich í heimsókn á St.Mary´s leikvanginn í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Ronald Koeman og hans menn voru í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu og eftir að Steven Whittaker fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir hálftíma leik var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda.
Ítalski markahrókurinn Graziano Pelle gerði fyrsta mark heimamanna í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Í síðari hálfleik tók svo Dusan Tadic við keflinu og tryggði heimamönnum öruggan sigur með tveim mörkum á þriggja mínútna kafla.
Southampton lyftir sér þar með upp í 10.sæti deildarinnar en nýliðar Norwich eru í 14.sæti.
Athugasemdir