Jón Vilhelm Ákason leikmaður ÍA, var tiltölulega sáttur með stigið sem liðið fékk eftir heimsóknina í Árbæinn í kvöld. Þar gerðu Fylkir og ÍA markalaust jafntefli í tíðindalitum leik.
Stærstu atriði leiksins snérist líklega að Þóroddi Hjaltalín dómara leiksins. Arnar Már miðjumaður ÍA fékk rautt spjald um miðjan seinni hálfleik og seinna í leiknum vildi Jón Vilhelm fá víti.
Stærstu atriði leiksins snérist líklega að Þóroddi Hjaltalín dómara leiksins. Arnar Már miðjumaður ÍA fékk rautt spjald um miðjan seinni hálfleik og seinna í leiknum vildi Jón Vilhelm fá víti.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 0 ÍA
„Mér fannst eins og Arnar Már hafi verið að reyna koma sér undan. Hann hélt höndunum uppi og reyndi að hleypa mannninum framhjá en hann hleypur á hann. Boltinn fer einhvert allt annað mér fannst þetta ódýrt," sagði Jón aðspurður út í seinna gula spjaldið sem Arnar Már fékk í leiknum.
Um atvikið þegar Jón féll við inn í teignum hafði hann þetta að segja.
„Þetta var pjúra víti. Það var stígið ofan á ristina á mér. Þetta var bara víti. Hann fær ekki "like" fyrir þetta," sagði Jón Vilhelm þegar undirritaður spurði hann hvort hann myndi gefa Þóroddi "like" fyrir frammistöðu sína í leiknum.
„Við höfum oft spilað betur, ég verð að viðurkenna það. Við létum boltann ekkert rúlla alltof vel og vorum ekki að skapa okkur mikið. Við héldum varnarskipulaginu vel og tökum það."
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir