Fyrsta tap Víkinga undir stjórn Milosar sem þjálfara kom í kvöld...eða hvað?
"Ef ég man rétt þá höfum við tapað nokkrum leikjum í sumar en vissulega fyrsta tap eftir langan tíma sem er frekar súrt, en svona er bara fótboltinn"
"Ef ég man rétt þá höfum við tapað nokkrum leikjum í sumar en vissulega fyrsta tap eftir langan tíma sem er frekar súrt, en svona er bara fótboltinn"
Víkingar fengu færi í leiknum í kvöld, þ.á.m. eftir um 20 sekúndur en tókst ekki að nýta þau til að skora.
"Kannski vorum við ekki búin að hita almennilega upp, þetta var stórt færi sem við fengum þá. Ég er ekki búinn að telja færin en við fengum nokkur og vorum inni í leiknum allan tímann, vorum með plan sem við breyttum og breyttum svo aftur en það dugði ekki."
Milos er býsna duglegur að róta leikkerfum og leikmönnum í leikstöðum á meðan á leiknum stendur. Er þetta eitthvað sem kalla má hans upplegg í þjálfuninni.
"Já það er það. Maður fer í leik með plan A og plan B og stundum plan C. Strákarnir vita alveg af breytingunum. Taktík og taktík, það eru alltaf ellefu menn að spila við ellefu menn, við verjum þau svæði sem eru hættuleg og reynum að nýta okkur þau tækifæri sem gerast."
Er markmiðið ekki ennþá að kveðja falldrauginn.
"Jú. Okkur vantar ennþá þrjú stig. Þegar við fáum þau þrjú stig þá get ég sagt að við erum öruggir".
Nánar er rætt við Milos í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Athugasemdir